föstudagur, september 29, 2006
Ekki að standa mig í blogginu, og svei nei. En hvað með það. Hú gers...Fór um daginn á alömurlegasta námskeið ever í inDesign, lærði nákvæmlega ekki neitt. Og algjörlega út í hött að sleppa tveimur kóræfingum fyrir það. En svona er þetta bara stundum. Mín fyrsta kóræfing í vetur síðasta þriðjudag. Ógislega gaman, skemmtileg lög þó trilljón kórar hafi tekið bítlana og svona en þeir standa nú alltaf fyrir sínum. Fór ekki á upprisuhátíð Bimbunnar. Stundum er bara ekki hægt að vera á tveimur stöðum í einu. Fór þetta kvöld á karókí með vinnunni, skemmti mér vel söng fullt og drakk fullt. Og svo er ég komin með nýtt áhugamál síðan rockstar lauk göngu sinni. Versla á ebay, það eru mínar ær og kýr þessa dagana. Og svo fór ég pottinn minn í fyrsta skipti í gærkveldi þegar myrkur skall á. Algjörlega klikkað að eiga svona pott þó ekki sé þetta nú allt frágengið enn en þetta kemur allt...annars bara allt í góðu...
þriðjudagur, september 05, 2006
Jæja enn og aftur að greiða atkvæði og halda okkar manni inni. Þetta er náttúrlega ekki í lagi að vera svona atkvæðasjúk en nú er að duga eða drepast. Látum ekki hinn stutthandleggjaða Dave komast upp með það að tala illa um okkar mann á blogginu sínu. Hann er sjálfur hálf óþolandi og var voða spældur þegar eintóna Ryan fékk að taka pokann sinn.
Annars bara allt í gúddí. Brálað að gera í vinnunni eins og fyrri daginn og við illa undirmönnuð þessa stundina.
Búin að passa ömmustelpuna mína og hún er algjör krús í dós og stjórnar ömmu gömlu eins og herforingi. Og amman lætur auðvitað allt eftir þeirri stuttu...
Annars bara allt í gúddí. Brálað að gera í vinnunni eins og fyrri daginn og við illa undirmönnuð þessa stundina.
Búin að passa ömmustelpuna mína og hún er algjör krús í dós og stjórnar ömmu gömlu eins og herforingi. Og amman lætur auðvitað allt eftir þeirri stuttu...